"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, maí 18, 2004

rumpa min!

oh my DOD (já með d-i)

ég var að enda við að kaupa mér flugmiða út til Danmerkur 29. júni. Hvað ætli ég sé að fara að gera þar, hmmm... giskiði, giskiði!

jamm er bara að hugsa um að skella mér á hróaskeldu (verð eiginlega að gera það núna víst ég er búin að kaupa flugmiðann...) er búin að sitja f. framan tölvuna í 1 og hálfan tíma og horfa á icelandexpress og roskilde síðurnar til skiptis, var ekki viss hvort ég ætti að fara og svo úps! úps! úps! var ég búin að ýta á nokkra takka og búin að setja miðann á mastercardið mitt. Uhumm, 27 þús kall fyrir flugið, svoldið mikið en það er svona að vera sein að ákveða sig... ég er reyndar ekki búin að kaupa miðann á hátíðina sjálfa, þar einhvern veginn að púkka upp fyrir því líka, yfirdráttur, vændi, sé til. Er ekki einhvern sem langar að gefa mér miðann sinn??? hehehe he... he... ok ég veit, frekar hæpið.

Jæja hjördís, nú verður þú að koma með. Þetta er þér að kenna (og ykkur öllum hinum í Aðlinum sem eruð á leiðinni þangað og eruð búin að vera að tala um hátíðinni svo ég heyri til ykkar. Þið ættuð að skammast ykkar! ...

Hey eitt enn, ég veit ekki um neinn sem er að fara með mér á þriðjudeginum, held að flestir fari á undan. Langar einhvern að taka tjaldið mitt með sér og tjalda því fyrir mig nálægt sér???

|