wut?
jáhá...
ég veit ekki hvern djöfulan ég gerði til að verðskulda svona bræður. Ég man eftir einu atviki þar sem Halldór elsti bróðir minn stillti mér upp við rúllu, sagði mér að vera kyrr og fór svo að kasta vasahnífum í átt til mín (ég var 7 ára minnir mig). Það voru líka ófáu skiptin sem hann og Magni stríddu mér, meiddu mig eða læstu mig úti með hundinum (í grenjandi rigningu!). En þrátt fyrir allan prakkaraskapinn hjá þeim þá held ég að yngri bræður mínir hafi náð að toppa þetta allt í gær....
Þeir stálu fokking bílnum mínum!!!
tveir guttar, 11 og 14 ára fannst allt í einu geðveikt sniðug hugmynd að fara í bíltúr. Ég held útaf því að þeir hafi ekki getað komið sér saman um hvort átti að labba út í búð að kaupa mjólk... djísus fokking kræst!

<< Home