afgangspasta og brauð
jæja jæja jæja jæja...!
Þá er prófatörnin búin í bili og ég farin í fiskinn. Ég vona a.m.k. að törnin sé búin, það kemur í ljós svo hvað kemur út úr prófunum...
Helgin var svo eytt í góðra vina hópi. Sprell og gaman bæði laugardags og sunnudagskvöld. Yndislegar kvöldstundir í heimahúsum, spjall, drykkja og spuni, svo Paddan og meira að segja tjútt á traffic þar sem ég kýldi mann í magann fyrir að eltast við Petru. Hann spurði mig af hverju ég hefði gert þetta og ég sagði honum hreinilega " sometimes I get really angry when I dance" Það er allt í lagi, hann er frá Turkmenistan svo ég þarf aldrei að hitta hann framar. Ég fattaði það samt daginn eftir að ég hefði kannski alveg bara getað beðið hann kurteisilega að láta okkur í friði. Ég veit ekki einu sinni hvaða land Turkmenistan er eða hvort það sé yfirhöfuð til land sem heitir þessu nafni en það minnir mig óneitanlega á leikinn, forðum daga í Frakklandi, sem við fórum oft í. Leikurinn hét „Nefnið Öll -stan Löndin“ (afganistan, pakistan...) mjög skemmtilegur leikur á fimmta glasi.
Ég hitti líka helling af ókunnugu fólki, t.d. kom einn gaur upp að mér og sagði„Vá, flottur búningur!“ og labbaði í burtu. Málið er að ég var ekki í búning, mér fannst ég vera svaka fín. Ég sagði samt bara takk, ætlaði ekkert að fara að erfa þetta við hann. Ég fór nefnilega að spá að ef fólk segir e-ð svona þá er það hrós, því honum fannst ég greinilega vera e-ð smart, þó ekki kannski á þann hátt sem ég var að stefna að en það er allt í lagi því hann var að hrósa mér og meinti það vel. Alveg eins og þegar Kristófer litli frændi minn sagði við mig að ég væri eins og trúður þegar ég var komin í sparikjólinn minn um daginn.
jamm en nú er hádegi og mig langar að borða...sí jú

<< Home