"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

miðvikudagur, maí 04, 2005

wow wowow owowwow wow!

Vá ok, ég get ekki setið á mér! ég er komin með plan sem er æðislegt! Ekkert glænýtt svo sem, en einhvern veginn passar þetta allt svo vel saman í hausinn minn... Þetta plan er ekki bara eitthvað venjulegt plan, heldur frábært framtíðarplan!

Það hljómar s.s. svona: Næstu önn held ég áfram í mannfræði en tek hana aðeins til 60 eininga og með henni tek ég svo ritlist til 30 eininga þar sem ég fæ frábæra leiðbeinslu í að skrifa niður hinar ýmsu pælingar sem laumast um í kollinum mínum. Einu ári af þessu BA námi verður svo varið í útlöndum, Frakkland væri náttúrlega alveg kjörið því þar með væri ég búin að festa niður frönskukunnáttu mína enn betur, en í raun hef ég ekki tekið neina ákvörðun um hvert ég mun fara.
Með þennan frábæra grunn fer ég svo til Manchester, England England... þar tekur við nám í sjónrænni mannfræði þar sem ég læri um allt sem snýst að heimildagerð og sjónrænum etnógrafíum. Þótt að þetta nám sé allt byggt upp á grunni mannfræðinnar þá gæti það samt nýst mér vel á öðrum sviðum því með því er ég komin með kunnáttu á hin ýmsu tól og tæki kvikmyndagerðar...
Eftir lokaverkefni mitt í þessu námi og kannski nokkrum leiðangrum um heiminn og einhverri sjálfboðavinnu tekur svo við nám í friðarfræðum (ekki viss hvort það verði bara önnur BA gráða eða master eða hvað...) Þar mun ég læra um margt sem viðkemur átökum í heiminum, ástæðum og úrlausnum.
Næsta skref: vinna fyrir alþjóðasamtök, sameinuðu þjóðirnar, við friðargæslu þar sem ég gæti svo notað kvikmyndahæfileka mína eða jafnvel ritunarhæfileikana til þess að miðla frá mér upplýsingum um ástandið í heiminum sem að endanum mun stuðla að alþjóðarvakningu í heims- og friðarmálum, og almenns umburðarlyndis í heiminum - JEI!

ok, en fyrst ætla ég að selja döflinum sál mína svo ég nái prófunum...

p.s. ég óli bróðir erum að fara að stofna hljómsveit í sumar sem hefur fengið nafnið Loona Bagloona (borið fram Lúna Baglúna), spurning um að fá mömmu með á trommur...

|