"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, apríl 12, 2005

mela mela mela - bygg!

ég stóð áðan í Melabúðinni umkringd ókunnugu fólki. Mér fannst ég eiga heima þar. Ég meira að segja gekk upp að manninnum við sölubásinn og spurði hann hvað hann væri að kynna. Hann rétti mér fjólubleika skeið og bauð mér að smakka. „Morgunréttur úr byggi“ sagði hann stoltur. Grauturinn festist í tönnunum á mér, en það skipti ekki máli. Hann fór að tala um hvernig það væri einfalt að elda þennan dýrindis graut en ég heyrði bara bla bla bla... var allt of önnum kafin að hugsa um nefið á mér og lekandi horið inni í því. Ég saug upp í nefið og reyndi að einbeita mér að manninum (ég er að átta mig á því meðan ég skrifa þetta afhverju ég kann ekki að elda...). Hann var vinalegur, leit ekki út fyrir að vera þessi típíska manneskja sem borðar bygg. Mér fannst hann frekar líta út eins og svona manneskja sem borðar samloku með hangikjötssalati og drekkur kók með, en hver er ég s.s. að dæma það. Ég borða hangikjötssamloku og kók og líka bygg, eða ég myndi borða það ef ég kynni að búa til svona graut. Ég hafði þó vit á því að spyrja hvort ekki þurfti að setja þau í bleyti. Nei, þess þarf ekki, bla bla bla... andoxunarefni... bla bla. Bíddu sagðirðu andoxunarefni, er það ekki svona gegn krabbameini? jú jú, sagði maðurinn, svo segja þeir (djöfull er ég klár!), þau hjálpa a.m.k. við að hreinsa líkaman við úrgangsefni... bla bla bla, horið var aftur farið að leka og eins og til að sýna mér samúð þá tróð maðurinn tissjúbúti í nefið á sér. Ég horfði á hann með öfund, mig langaði í þetta tissjú. Það var kominn nýr kúnni, ég þakkaði honum pent fyrir upplýsingarnar og dreif mig frá básnum.

|