jjjíííhaaaaaaa!
Frábærar fréttir!...
Ég er að fara á Hróarskeldu!!!
Það besta er að ég þarf ekki að borga úr eigin vasa. Það var haldinn fjölskyldufundur í gær þar sem utanlandsferð fjölskyldunnar var rædd (við erum búin að vera að bera út fréttablaðið saman síðan síðasta sumar og peningurinn er búinn að fara í sameiginlegan ferðasjóð).
Niðurstaða fundarins var þessi:
Fjölskyldan hefur ákveðið að fara til Danmerkur að heimsækja ættingja og vini. Leigður verður bílaleigubíll og sumarhús nálægt landamærum Danmerkur og Þýskalands, einhvers staðar við ströndina. Ferðin verður farin í kringum 14. júní og flogið verður heim um 28. júní, allir nema Linda því hún verður eftir til að fara á Hróarskeldu (Óli bróðir má ekki fara á Roskilde því hann er bara 15 ára. Muggur bróðir má ekki bara vera eftir heima því hann er bara 11 ára). Kisa verður sett í pössun hjá einhverjum sem henni er ekki illa við.
Þetta er snilld! Þessi lausn hentaði öllum mjög vel því ef við kaupum þessa ferð verður töluverður afgangur af peningum í sjóðnum, hluti af honum verður settur í það að byggja grindverk heima svo maður geti flatmagað og grillað í garðinum í sumar án þess að allir sem keyra út á Skaga sjái mann. Óli getur borgað upp krossarann sinn, Muggur fær pening til að fara safna sér fyrir krossara og ég fer á Hróarskeldu - JEI!
Planið er svo jafnvel að fara öll fjölskyldan saman á Hróarskeldu næsta sumar, þ.e. ef mamma fær ekki taugáfall við tilhugsunina...

<< Home