abbalabba lá
Ég fékk vægt taugaáfall í dag þegar ég áttaði mig á því að við yrðum 8 manns í heimili yfir helgina, þar af 4 börn. Ég var búin að ákveða að nýta hana í lærdóm, komin með verkplan fyrir hvern dag og allt. Ég náði þó að redda deginum í dag, eða réttara sagt Bogga og Magni redduðu honum. Ég fékk lykil að íbúðinni þeirra á mánudaginn á meðan þau voru upp í bústað, notaði aðstöðuna vel á meðan. En nú eru þau komin heim þannig að ég stökk á plan B og hringdi í ástkæra ömmu mína sem bauð mér að vera hjá sér. Ég ætla því að fara þangað á morgun og flýja fjölskyldu mína næstu daga.
Mamma er samt komin með geðveikt plan. Hún er að stóla á það að það sé gamall milljarðarmæringur einhvers staðar útí heimi sem vantar erfingja og er með nokkra stjörnufræðinga á sínum snærum að leita að manneskju fæddri 21.06.57 og sem býr á köldu landi, á mikið af börnum og ekkert svo mikinn pening. Þegar hún er fundinn og fær arfinn og verður stjarnfræðilega rík þá ætlar hún að kaupa heila blokk handa mér þar sem ég get falið mig endalaust út um allt í blokkinni minni frá öllum á meðan ég er að læra. Svo ætlar hún að kaupa one-way ticket til jan mayen fyrir ónefndan aðila... Ég þarf samt enga blokk, ég myndi frekar vilja bara lítið sætt hús með aðgang að garði, ég gæti bara sett "do not disturb" skilti á hurðina þá fengi ég frið. Ekki það að fjölskyldan mín sé e-ð leiðinleg. Það er æðislegt að eiga stóra fjölskyldu, bara pínu kæfandi stundum...
Ég fór ekki vestur en ég glöð í hjarta mínu fyrir hönd þeirra sem fóru þangað.

<< Home