gingsen og expressokaffi
..."these two componential analysis differ in the technical understanding of the lineal/collateral or direct/collateral distinction and in the hierarchical relation between different distinctions of generation"...
ég er búin að lesa heila bók um isma og ég þoli ekki isma... ég held mér hafi aldrei leiðst jafn mikið að læra undir nokkurt próf sem ég hef farið í. Það versta er að ég skil þrátt fyrir lestrarmaraþonið ekki neitt um isma. Mig langar að kasta mykju í einhvern.
Þetta minnir mig samt svolítið á lokaprófið fyrir ísl 403 eða 503 þar sem maður átti að læra um helling af stefnum og tugi karla sem hétu allir Jón eða Jóhannes, fóru til Köben, lærðu lögfræði, skrifuðu meistarverk og dóu því þeir höndluðu ekki bjórinn í Köben. Það var ekki skemmtileg próflesning...
Hjálpin barst mér þó í gegnum ímeil frá kærri konu og rokkara sem heitir Anna K. Hún benti mér á lærdómssíðu þar sem maður getur slegið inn orð eins og structural-functionalism eða cognitive science og þá kemur upp grein sem útskýrir hugtakið fyrir manni. Ég ætti því að geta skilið þetta húmbúkk. vonandi.
Lífið er samt yndislegt eins og alltaf. Það vilja allir allt fyrir mann gera, allir tilbúnir til að hjálpar. Það er eins og hausinn á mér hafi sent út s-o-s skeyti þegar ég áttaði mig á klemmuni sem ég var búin að koma sjálfri mér í. Frænka mín kom mér nefnilega líka til hjálpar. Hún var að fara til Amsterdam og vissi að mig vantaði næði til lesturs. Ég er því nú í fallegu húsi með góðum anda í Kópavogi, að passa tvo hunda sem samanlagt hafa þó bara þrjú augu. Og við erum á góðri leið með að verða stórstjörnur! Ég fór nefnilega í gönguferð meðfram sjónum í dag með hana Týru og hitti þar tvo blaðamenn sem voru að gera pistill um göngustíginn og Kópavoginn. Þar sem Týra er Kópavogsbúi, var tekin mynd af okkur og lítið viðtal sem mun svo birtast í Morgunblaðinu bráðum.
jamm lærilærilærilæri...bleblebblelblelblleeeee ee e .. ..... . eða kannski sofisofisofisof?

<< Home