ladída
oi oi oi! Jamm ég hef sko ekki verið dugleg að blogga upp á síðkastið. Hef verið upptekin við að gera ekki neitt, a.m.k. ekki neitt merkilegt.
Danmerkur-/Þýskalandsferðin er búin og ég komin heim fyrir löngu. ætlaði alltaf að skrifa svona Hróaskeldu pistil í enda ferðarinnar en ég held ég stikli bara á stóru....
Roskilde var geggjuð, gott veður, geðveikir tónleikar, gott fólk, volgur bjór... Fantomas voru langbestu tónleikarnir að mínu mati, einnig stóðu tónleikarnir með Patton/Rahzel og le Tigre upp úr. Marg að sjá og margt að gera og mikið að drekka, eins við má búast.
Allt ferðalegið heppnaðist bara með eindæmum vel verð ég að segja. Hitti týnda sauði úr fjölskyldunni, suma hafði ég aldrei hitt áður. Veðrið var geggjað, sól og blíða og yndislegheit. Sá margt og gerði margt, fór í dýragarð, skemmti- og vatnsrennibrautagarð, keyrði um megnið af Jótlandi og e-ð í Þýskalandi líka, fór á ströndina, skoðaði borgir og slappaði af inn á milli. Sem sagt bara hin besta ferð.
Ok, hvað er annað í fréttum? Hmmm... já, þangað til áðan hélt ég að ég gæti jafnvel verið dottin úr háskólanum því ég var úti þegar eindaginn á gíróseðlinum mínum rann út og náði ekki sambandi við skrifstofuna. Ég fékk hughreistandi bréf frá konu ( sem virtist vera í fríi í Danmörku einmitt), þar sem hún tjáði mér það að þetta myndi allt redast í ágúst þegar skrifstofurnar væru búnar í fríi. Hjúkk! Ég farin að hlakka til að byrja aftur í skólanum og allt saman og sá fyrir mér að ég þyrfti að gera mér ný framtíðarplön!
Ég er búin að kíkja í stundartöfluna mína og finnst hún svoldið skrautleg. Mánudaga og þriðjudaga er ég allan daginn í skólanum og svo fer ég í einn tíma annað hvort miðvikudaga eða föstudaga, s.s ég er aðeins 3 daga í viku í skólanum. Eins gott að missa ekki vitið og vera skipulagður í vetur.
ok, nóg í bili...

<< Home