verum meðvituð
Ég rakst á áhugaverða grein í Fréttablaðinu í dag. Greinin sjálf var s.s. ekkert merkileg en hún situr enn í mér. Í greininni var fjallað um það hvernig nýjasta stjörnustríðsmyndin hefði slegið tekjumet á fyrsta sýningardegi í Bandaríkjunum. Tekjurnar voru 3250 milljónir íslenskra króna. Ég veit að það eru heilmargir sem fá skerf af þessum peningum sem koma að vinnu í bíóum, að framleiðslu myndarinnar o.s.frv. En ég fór að spá að ef að allt þetta fólk sem ákvað að fara í bíó þennan dag hefði sleppt því og sett peningin í sjóð, ímyndið ykkur hvað þessir aurar hefðu getað gert gott fyrir fólk sem þarf virkilega á því að halda.
Barnadauði í heiminum er 10,5 milljónir á ári og er þá miðað við börn 5 ára og yngri. Veltið þessari tölu aðeins fyrir ykkur. 10,5 milljón börn deyja árlega. Það skuggalegasta er að um 60% þeirra er hægt að bjarga með ódýrum lausnum. Ímyndið ykkur nú að ef þessar 3250 milljónir króna hefðu verið varið í eitthvað annað en afþreyingu fyrir Vesturlandabúa, hversu mörgum börnum hefði verið hægt að bjarga með kaupum á lyfjum eða með fæðuöflun á einhverju hrjáðu svæði. ímyndið ykkur nú hversu mörg börn dóu í dag úti í hinum harða heimi vegna vandamála sem hefði getað verið leyst á frekar einfaldan hátt. Auðvitað vakna upp alls konar spurningar: Afhverju þarf ég að bera ábyrgð á einhverju fólki sem ég þekki ekki neitt? Afhverju á ég að eyða mínum peningum í þetta fólk? Afhverju getur það ekki bjargað sér sjálft? Hef ég ekki nóg af vandamálum sem ég þarf að leysa? Þessar spurningar eru allar réttlætanlegar en setjið ykkur í spor móðurinnar sem heldur á dauðvona barni sínu vitandi það að það eina sem þarf til að bjarga því er aðeins meiri matur eða sykurupplausn eða hreint vatn.
Ég er ekki að segja að við eigum að kasta frá okkur öllu sem við vinnum fyrir, fara að stunda sjálfsþurftarbúskap og ganga berfætt en það væri gott ef öllum væri ekki svona skítsama. Ég er heldur ekki að reyna að setja mig á hærra plan með einhverri predikun. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég er samsek.
Mig langar að enda þennan pistil á broti af kvæði eftir Tómas Guðmundsson sem heitir Heimsókn. Ég mæli með því að þið farið á bókasafnið og lesið allt ljóðið við tækifæri því þetta er bara partur af því og er því kannski aðeins úr samhengi. Gefið ykkur tíma til að lesa yfir þessi erindi og hugsa um það sem hann er að reyna að segja.
Heimsókn
Frá gullnu víni, ljúfum perluleik
við ljóð og draum, frá rós, sem angar bleik,
þú hrekkur upp með andfælum og hlustar.
Því sjá, það hefur hent, sem kveiðstu mest:
Hér hýsir þú í stofu þinni gest,
sem óvænt kom og köldum hrolli gustar.
---
Og þú munt seinna skynja skáldskap hans.
Þér skilst hann fyrst, er þjáning sérhvers manns
er þér í innstu æðar hjartans runnin.
Því lát hans ógn og angist næða um þig.
Lát elda harms og kvala flæða um þig
unz skógur þinna blekkingar er brunninn.
Og vitund þín mun öðlast sjálfa sig
er sérðu heiminn farast kringum þig
og elfur blóðs um borgarstrætin renna.
Því meðan er til böl, sem bætt þú gazt,
og barist var á meðan hjá þú sazt,
er ólán heimsins einnig þér að kenna.
Því hér er líf, sem þú berð ábyrgð á.
Um örlög þín skal liggja vegur sá,
sem lífið fer, á leið til fjærstu alda.
Því vit, að eigi aðeins samtíð þín,
hver ófædd kynslóð meðan stjarna skín
þarf strax í dag á þinni hjálp að halda.
---
Og sjá, að gullnu víni, ljúfum leik
við ljóð og draum, að rós, sem angar bleik,
er annar maður ókunnugur setztur.
Hann skelfist sjálfan sig, þinn komumann,
því sjálfur veruleikinn, þú ert hann,
og hann, sem þú varst áður, er þinn gestur.
Frá gullnu víni, ljúfum perluleik
við ljóð og draum, frá rós, sem angar bleik,
þú hrekkur upp með andfælum og hlustar.
Því sjá, það hefur hent, sem kveiðstu mest:
Hér hýsir þú í stofu þinni gest,
sem óvænt kom og köldum hrolli gustar.
---
Og þú munt seinna skynja skáldskap hans.
Þér skilst hann fyrst, er þjáning sérhvers manns
er þér í innstu æðar hjartans runnin.
Því lát hans ógn og angist næða um þig.
Lát elda harms og kvala flæða um þig
unz skógur þinna blekkingar er brunninn.
Og vitund þín mun öðlast sjálfa sig
er sérðu heiminn farast kringum þig
og elfur blóðs um borgarstrætin renna.
Því meðan er til böl, sem bætt þú gazt,
og barist var á meðan hjá þú sazt,
er ólán heimsins einnig þér að kenna.
Því hér er líf, sem þú berð ábyrgð á.
Um örlög þín skal liggja vegur sá,
sem lífið fer, á leið til fjærstu alda.
Því vit, að eigi aðeins samtíð þín,
hver ófædd kynslóð meðan stjarna skín
þarf strax í dag á þinni hjálp að halda.
---
Og sjá, að gullnu víni, ljúfum leik
við ljóð og draum, að rós, sem angar bleik,
er annar maður ókunnugur setztur.
Hann skelfist sjálfan sig, þinn komumann,
því sjálfur veruleikinn, þú ert hann,
og hann, sem þú varst áður, er þinn gestur.

<< Home