englar í búri, kúri kúri - kúri
margfalt húrra fyrir Sylvíu Nótt!!!
Allt í einu er ég orðin sjónvarpsfíkill, eða svona a.m.k. á minn mælikvarða. Hef ekkert oft misst mig yfir einhverjum þáttum. Horfði á eina seríu af Survivor og það var alveg nóg fyrir mig... horfi oft á CSI en bara ef það vill svo til að ég sitji fyrir framan sjónvarpið. Ég geri það yfirleitt bara ef ég hef ekkert betra að gera... sem er alveg pínu algengt... en já, ég kann s.s. ekki dagskránna utan bókar. En nú er ég allt í einu komin með 3 uppáhaldsþætti: Lost, Dead Like Me og Sjáumst með Sylvíu Nótt. Ég var samt ekkert smá fúl á mánudaginn þegar ég komst að því að Dead Like Me og Lost eru báðir á mánudögum, á svipuðum tíma. Ég þurfti að grípa til þess örþrifaráðs að læra að taka upp á vidjóið, sem var reyndar alveg furðulega auðvelt. Það hefur leitt það af sér að núna vil ég taka upp ALLA Sylvíu Nótt þættina og helst líka Lost... er pínu að missa mig... og á líka eftir að horfa á alla sex in the city, friends og office... pfúff! Er þetta virkilega það sem ég vil eyða sumrinu í??? Neibb, en ég ætla að skvísa þessu einhvers staðar á milli.
Annars er margt í fréttum, er búin að fá úr prófunum, er ánægð og reið í bland yfir útkomunni. Náði öllu, með sæmilegar einkunnir en veit samt alveg að ég hefði getað gert svo miklu miklu betur... en jæja, sökin er mín og ég verð að taka því. Fokkshitcuntdamnfatherfucker!
Aðrar fréttir eru þær að ég og Svala ( svala, it must be, svala!...) erum að fara á Roskilde festival. Yndislega alheimsorkugleðisólarhátíð þar sem tólistin mun hreinsa okkar sál og ölið mun skola burt öll leiðindi. Gaman gaman - JEI! Reyndar fer ég út strax 20. júní og mun heimsækja Afa minn og spússu hans á Jótlandi ásamt fjölskyldu minni. Jamm og já, hlakka til! Eitt böggar mig þó. Talvan er ekki tilbúin að vinna með mér þessa dagana og ég get ekki hlustað á nein lög af Roskilde síðunni, skil hvorki upp né niður. Ég á s.s. eftir að kynna mér yfir 100 bönd fyrir 20. júní... oh my god! Nóg að gera... Á hvaða síðu er best að downloada tónlist?
Og já, svo er það líka í fréttum að mig langar í nýja geggjaða fartölvu, geðveikt flotta digital myndavél, vídjóupptökuvél og iPod... og margt margt fleira, en þetta er svona efst á lista. Mig langar líka til útlanda og mig langar að vera þar í langan tíma að gera eitthvað ótrúlega spennandi. Ég keypti mér því Lottó en vann ekki, ég vinn næst - tvöfaldan pott! Júbbídúúúú!!!

<< Home