"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, maí 29, 2005

five o´clock in the morning. What´s it gonna be?...

jam jamm jammm jammmm

Búin er yndisleg orkuhelgi með fallegum og sérstökum konum.

Gítar og söngur, batterí og græjur, kúkur og prump, matur og vín og svo miklu miklu fleira.

Óðum ánna til að horfa á sólsetrið hinum megin við hólinn og kveiktum varðeld - ótrúlega duglegar! Duglegar líka fyrir vikið að hafa klárað hvern einasta dropa af áfengi á svæðinu og allan grillvökvann (sem fór á bálið, ekki á milli tánna á okkur).

Sömdum lög (Thelma elskar rassinn á sér - sígildur slagari þar á ferð) og sumir röppuðu og spunnu og máluðu landslagsmyndir.

Borðuðum ostabrauð

töluðum saman um allt og ekkert, aðallega ekkert.

kynntumst nýrri manneskju sem heitir Lilja.

Máluðum okkur í framan með stríðsmálningu, stigum stríðsdans í kringum eldinn (sem reyndist eiginlega vera regndans) og brutum nokkur hljóðfæri.

Sólbað og sæla... og allt þar fram eftir götunum.

Takk takk takk, lengi lifi Melbær!
com mi amigo !

|