jíbbíjei!!!!! júhúúúúú! gleði gleði gleði
ok, ég er búin að finna svarið!!!
Þannig er mál með vexti að ég hef verið alveg ákveðin frá því ég hóf mína háskólagöngu að nýta mér þann kost að fara út sem skiptinemi. Ég hef mikið velt því fyrir mér hvert ég ætti að fara. Mig langaði til Englands því bretlandseyjabúar eru skemmtilegir, kátir og kunna að drekka bjór. Einnig til að undirbúa mig undir væntanlegt mastersnám sem mig langar að taka þarílandi. Annar kostur var að fara til Frakklands til endurupplifa franska menningu, kaffihús og ná betri tökum á frönskunni. Enn einn kosturinn var að fara einhvert langt langt í burtu þar sem allt var eilítið öðruvísi og spennandi eins og t.d. til Nýja Sjállands...
Ég fékk svarið í dag í ímeili þar sem mér var sagt að hér á landi væri prófessor frá eyjunni Réunion í Indlandshafi, kominn til að halda fyrirlestur á morgun (sem ég get því miður ekki farið á, því ég er í vinnu, í fiski, í Garðinum...). Í bréfinu stóð einnig að mannfræðideildin við H.Í. hefði alveg ótrúlega, súperdúber krúttulega æðisgengin samning við þennan háskóla, sem er staðsettur í borginni St. Denis á eyjunni Réunion. Það stóð einnig að eyjan væri skammt frá MADAGASKAR sem er fokking draumastaðurinn minn! Staður sem mig hefur alltaf langað til að heimsækja og skoða lemúra eftir að hafa séð heimildarmynd með John Cleese þar sem hann ráfar um regnskóga og leitar að lemúrum fokk shitt damn ég er svo spennt að ég gleymdi að skrifa allar kommur og punkta!
Á þessu augnabliki fékk ég hugljómun og fann svarið (þ.e. á því augnabliki sem ég las ímeilið, sem hefur líklega tekið svona einaoghálfamínútu). Ég ætla í skiptinám við háskólann á la Réunion.
Pálmatré, spennandi og framandi staður, franska (jebb eyjan tilheyrir Frakklandi en er fjölmenningasamfélag), kínverskur matur, strönd.... say no more
http://www.la-reunion-tourisme.com/gb_entree.htm ef þið viljið tékka á eyjunni

<< Home