"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, ágúst 21, 2005

going to the city!

Ég ákvað að beila á menningarnótt, hafði bara einhvern veginn engann áhuga á að fara. Hélt mig frekar heima við, eða réttara sagt, heima hjá Magna og Boggu og chillaði. Hékk í tölvunni, hlustaði á tónlist (er algjörlega húkkd á Mars Volta núna) og hafði það gott. Horfði líka á dvd. Ætlaði að taka myndina Hotel Rwanda en hún var ekki inni þannig að ég endaði á því að taka Garden State og Orange County. Ég áttaði mig svo á því hvað þetta var fyndið val í dag... Báðar myndirnar fjalla, á ólíkan hátt, um fólk sem er að reyna að flýja heimahaga sína á einhvern veg en nær svo á endanum að sætta sig við þá. Hélt kannski að þarna væri undirmeðvitundin að reyna að segja mér eitthvað, í ljósi þess að ég flyt í bæinn eftir svona viku (ok, ég fékk pínu hroll og áttaði mig rétt í þessu hvað það er geðveikt stutt þangað til...fokk!). En já, tel mig samt ekkert vera að flýja, er ekki að fara nógu langt í burtu til að geta sagt það...

Jamm og já, ég er s.s. komin með íbúð í Reykjavíkinni. Ég fékk, mér til ómældrar ánægju, inn á stúdentagarðanna og verð því minn eigin herra í lítilli einstaklings íbúð á Suðurgötunni. Fyndið líka að fyrir stuttu síðan var verið að spyrja mig hvort ég væri búin redda mér stað til að búa á og ég sagði "nei, þetta reddast bara". Gugga hló mikið að bjartsýninni í mér. " Eins og einhver eigi bara eftir að hringja í þig og segja, Hey! þú getur fengið þessa íbúð...". En bjartsýnin borgaði sig svo sannalega og sömuleiðis að stressa sig ekki, því nokkru síðar fékk ég bara e-mail sem sagði "kæra Linda Guðmundsdóttir, þú hefur fengið úthlutaða íbúð"...Gleði gleði gleði!

Jamm og svo er ég að fara á Atp festival í desember að horfa á the Mars Volta ásamt góðum gestum og það er ennþá meiri gleði og hamingja... hlakka svo ótrúlega til!

En já, verð að hætta. Þarf að vakna snemma á morgun og renna í Reykjavíkina að skrifa undir húsaleigusamning o.fl. - wow! Geggjað! Kannski ég kíkji í Góða Hirðinn í leiðinni...

|