fordómar? hvaða vitleysa...
Um helgina létust álíka margir í sjalfsmorðsárás í Írak og létust í London um daginn. Þrátt fyrir það virðist enginn hafa staðið fyrir mínútuþögn í Evrópu vegna þeirra sem dóu í Írak. Þetta var heldur ekki áberandi frétt á forsíðum blaðanna hér á landi. Það virðist sem að okkur finnist sum líf verðmætari en önnur. Er ekki eitthvað bogið við það?

<< Home