geimverudvergur, hvað meinarðu?
Verslunarmannahelgin liðin eins og hún hafi aldrei verið til staðar. Undarlegt hve tíminn líður hratt þegar loksins kemur að stóru stundinni...
Komin heim frá Smoky Bay, höfuðborg innipúkans. Varð alls ekki fyrir vonbrigðum með helgina. Komst að því að Trabant er mest kynæsandi hljómsveit í heimi. Ég veit ekki, það er bara eitthvað ótrúlega flott við teipaðar geirvörtur. Komst líka að því að Mugison er alltaf góður á tónleikum og að Cat Power er það ekki.
Helginni var s.s. vel varið með góðum vinum að hlusta á góða tónlist, eða eins og indverjar segja: "gamani samani".

<< Home