"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

laugardagur, júlí 23, 2005

onions=ogres=oj

Það er alveg ótrúlegt hvað manni getur dottið í hug...

... Ég rölti inn í eldhús í 7 skiptið í dag hugsandi að ég væri svöng án þess þó að hafa lyst á einhverju sérstöku. Opnaði ískápinn og sá allskonar samansafn af matvælum sem einhvern veginn pössuðu ekki saman alveg sama hvernig ég reyndi að raða þeim saman í kollinum á mér. Loksins fann ég lausn á málinu: Pulsubrauð með tómatsósu, steiktum og hráum lauk, ásamt kókglasi - klassík! Skar mig á glerbroti meðan ég beið eftir brauðinu sem var að hitna í örbylgjunni. Er núna með rispu á ristinni, kannski fæ ég ör til minnis um þennan dag... Skar niður rauðlauk og sáldraði í brauðið bætti hinum hráefnunum við. Settist niður í annan morgunstólin þrátt fyrir að það væri komið fram á miðjan dag. Borðaði með bestu lyst þar til kom að síðasta bitanum. Eftir að hafa troðið honum upp í mig fannst mér allt í einu eins og ég hefði svamp upp í mér. Ég hljóp að ruslafötunni og hrækti honum út úr mér. Skyndilega varð mér starsýnt á laukbitann sem stóð á borðinu á móti mér. Ég fékk þessa rosalegu löngun til að vita hvernig laukur smakkast hrár, eintómur... Ég stakk honum upp í mig og tuggði. Hugsaði með mér að þetta væri kannski ekkert svo slæmt á bragðið, kannski væri ég bara búin að finna mér nýtt uppáhalds hrátt grænmeti. Svo byrjaði tungan á mér að brenna. Ég hefði öskrað ef ég hefði ekki verið með fullan munninn. Hrækti ógeðinu í vaskinn, djöfulsins viðbjóður! Fékk mér súkkulaði til að reyna að bæla niður bragðið, fékk mér svo lakkrís þegar það virkaði ekki. Er búin að borða töluvert bland í poka, drekka kók og ég veit ekki hvað og hvað. Allt kemur fyrir ekki, er enn með laukbragð upp í munninum á mér, upp í gómi, ofan í koki og út um allt. Skilaboðin eru skýr: Ekki borða eintóman hráan lauk, það er ekki kúl.

|