gmana, agman, gaman



jæja, þá er það ákveðið. Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að sækja um að fara sem skiptinemi til Slóveníu. Ég finn að af öllum kostunum er ég lang spenntust fyrir því. Það er líka einhver skæður faraldur núna á Réunion. Mosquitóflugur sem bera hann á milli og einkennin eru hræðileg gigt sem getur tekið mörg ár að jafna sig á... en það er ekki ástæðan fyrir minni ákvörðun, frekar kannski réttlætingin... Mér var líka bent á alveg ótrúlega magnaðan hlut í dag. Ég er búin að vera eitthvað að vandræðast yfir þessu og búin að vera að spá í tungumálunum svo mikið, hvað það væri gott að læra frönskuna betur og hvað það væri mikið vesen að fara einhvert þar sem ég tungumálið er mér framandi. Mér var bent á hvað það gæti í raun verið jákvætt að læra slóvensku. Mér hafði aldrei dottið það í hug að líta á það sem ævintýri, sem er eiginlega fáranlegt í ljósi þess hvað mér hefur alltaf fundist gaman að læra tungumál.
Nú er bara að fara á fullt og sækja um. Það þýðir samt ekki endilega að maður komist inn, ef ekki þá set ég Réunion sem minn seinni kost...
Gaman, gaman.
Ég er svo að fara á danssýningu í kvöld - ótrúlega gaman allt saman!
Núna verð ég samt að einbeita mér að því að læra, læra, læra.
Gaman, gaman.

<< Home