en krassandi!
það er enn ein andvökunóttin framundan. Lokapróf á morgun. Það eru bara nokkrir tímar þangað til, að sama skapi eru líka bara nokkrir tímar þar til að það er búið. Það er eiginlega svolítið gaman í prófum. Ég fer alltaf í e-ð svo skrítið skap þar sem mér líður eins og ég sé með endalausan svefngalsa. Það gerir víst margra daga svefnleysi. Jamm, það er stemmning að vera í skóla... Ég bölva sjálfri mér samt alltaf fyrir skipulagsleysið en ætli það sé ekki bara partur af stemmningunni - að sjá hvað maður kemst upp með mikið...
Læra, læra, læra.... kaffi, mig vantar alveg helling af kaffi!

<< Home