"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, febrúar 06, 2006

smokkar og jugursmyrsl

Helgin var bara nokkuð skemmtilegt og vel heppnuð ef frá er talin sú staðreynd að ég lærði lítið sem ekkert...

Ég ákvað á síðustu stundu að kíkja í keflóvík á föstudaginn. Kíkti með Rósu Klikk í eftirlitsferð. Fékk að sjá undirheima Keflavíkur... eða svona næstum því.
Á laugardaginn fór ég svo á Duus að læra aðeins og svo á opnun í suðsuð-vestur þar sem Sigríður Ólafsdóttir er með sýningu. Maður stígur alltaf inn í nýja veröld þegar maður mætir á opnun hjá henni Thelmu og co.

Eftir heimsókn til ömmu og afa var svo ferðinni haldið í Kópavoginn þar sem að átti að vera mini-ættarmót. Þar hittumst við nokkur vel valin frændsystkyn og djömmuðum all svakalega. Partýið náði hámarki þegar hópurinn fór í singstarkeppni. Hún endaði samt á því að stákarnir urðu fyrirfram tapsárir og tóku mikrafóninn okkar úr sambandi. Við stelpurnar náðum samt að vinna þrátt fyrir svindlið... Hópurinn tvístraðist niðrí bæ. Ég, Soffía og Þóri Jarl fórum á ellefuna og héldum uppi rokkímynd fjölskyldunnar. Ég og Jarlinn eins hann vill láta kalla sig ákvaðum að það þyrfti að skóla hana Soffíu litlu í tónlist. Það þurfti samt ekkert, hún er með ágætan smekk skvísan. Þóri Jarl tók það líka að sér að sjá um og passa frænkur sínar, splæsti í drykki og reyndi að lenda í slagsmálum við hvaða strák sem vogaði sér að ganga framhjá okkur. Hann er næstum því jafn mikið fífl og Magni bróðir þegar hann er fullur. En það er bara gaman. Eftir gífurlegt tjútt var ferðinni heitið í eftirpartý á Skólavörðustígnum. Ég gerði voða lítið annað þar en að æla í klósettið... eða jú það var alveg ýmislegt sem gerðist svosem...

jamm lífið er svo sannarlega áhugavert verð ég að segja. Ég hef ákveðið að segja sem sjaldnast hluti eins og ég hef aldrei, eða ég ætla ekki nokkurn tíma að...

Svo er það málið með Sylvíu Nótt en ég held að það sé efni í næsta pistil. Ég þarf víst að fara að læra fyrir próf. En það er ekki þar með sagt að ég ætli að gera það...

|