"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, janúar 29, 2006

jólójóló jei jei jei! og lakkrids

Ég fæ jólagjöf, ég fæ jólagjöf, ég fæ jólagjöf, eitthvað sem gaman er og gott að fá!

Ég er að fara í seinbúið jólapartý núna á eftir. Jólapakkarnir frá möggu frænku í Bandaríkjunum voru að koma fyrst núna. Þeir týndust eitthvað í Ameríkunni. Það var s.s. hóað í lítið matarboð í kvöld. Annars hélt ég að hún frænka mín væri hætt að gefa mér jólapakka því ég væri orðin svo gömul... veit ekki, kannski er ég bara að fara að borða góðan mat og hrfa á litlu bræður mína og foreldra opna pakka... mmm...matur, ég elska mat.

og svo að næsta liði: HVER VILL KAUPA LAKKRÍS!

mmm... ímyndið ykkur að liggja undir teppi og horfa á góða spólu og gæða sér á dýrindis lakkrís... kíló á ca þúsund kall. Til styrktar (góðu) málefni, Háskólakórnum.... Er ekki líka nauðsynlegt að eiga lakkríspoka upp í skáp ef enhver skildi koma í heimsókn?

|