mæ ó mæ
mmmm... sólkjarnarúgbrauð með osti, örlitlu mæjónesi, klettasalati, papríku og gúrku...
Ég hef ákveðið að bretta hendur fram úr ermum. Þetta gengur ekki lengur. Ég er endalaust á leiðinni að fara að læra en kemst aldrei neitt lengra. Nú ætla ég að koma mér af stað. Það er heldur ekki seinna vænna því að ég er að fara í próf eftir rúma viku og á að skila drögum að hópverkefni á þriðjudaginn.
Oddi er samt hræðilegur svona á daginn, það glymur svo rosalega í allri byggingunni. Það er best að vera hérna á kvöldin. En hey! Ekkert skal stoppa mig í að leita mér fróðleiks. Þúsund gargandi mávar dritandi á hausinn á mér geta ekki stöðvað mig!
Síðustu dagar hafa einkennst af rosalegum dofa. Ég svaf allan þriðjudaginn, þá meina ég allan þriðjudaginn! Ég fór að sofa klukkan 8 um morguninn og vaknaði klukkan hálf níu um kvöldið. Svoldið langur blundur... Ég varð í senn brjáluð og agndofa yfir þessu öllu saman. Svo agndofa að ég náði ekki að vera alveg nógu brjáluð út í sjálfa mig. Dofin, dofin, dofin... En já, rétt fyrir miðnætti þetta sama kvöld ákvað ég að leigja mér spólur víst allt stefndi í andvaka nótt. Ég tók tvær alveg yndislegar myndir: Hótel Rwanda sem ég er búin að ætla að horfa á lengi og svo Dear Frankie sem er voða svona hugljúf og falleg mynd án þess að vera slepjuleg á nokkurn hátt. Það er svo gaman þegar sögur eru vel skrifaðar eins og raunin er með þessar tvær myndir. Það er enn betra þegar sögur ná að snerta mann aðeins og jafnvel fá mann til að tárast, eitthvað sem ég hef ákveðið að gera meira af í framtíðinni. Ég trúi ekki að ég hafi farið varhluta af því að grenja yfir bíómyndum fram að þessu.
jamm, hvað annað... ekkert annað... nema læra.
jú ég hvet alla til að fjölmenna á styrktartónleikana í kvöld. Frekari upplýsingar hjá Rjúpunni og Rósu Klikk (sjá tengla til hliðar).
Ég ætla að reyna mitt besta til að mæta en það lítur allt út fyrir að ég komi ekki. Fyrir þá sem eru í sömu sporum og ég bendi ég á styrktarreikning þeirra Hjölla og Bebbu (sjá einnig fyrrnefnda tengla).

<< Home