róllírúlar
Ég gerði heiðarlega tilraun til að blogga í gær en það tókst ekki. Nú er sú færsla úrelt, því miður því hún var mjög krassandi. Fjallaði um draum sem mig dreymdi þar sem Heath Legder var kærasti minn og ég lenti í brjáluðu rifrildi við söngvara the Mars Volta þar sem ég kallaði hann ógeðslega druslu sem væri morandi í kynsjúkdómum... ok, þetta var eiginlega það eina krassandi í færslunni í gær. Þið eruð kannski heppin að hafa ekki þurft að lesa meira um það en það sem stendur hér að ofan.
Ég er að læra, það er búið að taka mig tveggja tíma danssession í stofunni heima til að koma mér í fíling. Ég held ég hafi samt aðeins ofgert það, ég held ég sé með alvarlegan hálsáverka eftir brutal slamm við mastodon og fantomas...
Þarf að gera tvö hópverkefni í dag, sem er allt í lagi fyrir utan það að annar hópurinn er fjarri góðu gamni og ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta verkefni á að vera. Þetta reddast allt saman, það gerir það alltaf.
Ég hlakka alveg ótrúlega mikið til föstudagskvöldsins! Þá er áætlað skvísudjamm. Rjóminn af hópnum ætlar að koma saman og drekka seyðandi drykki og dansa í háhæluðum skóm og skvísast saman. Það verður sko örugglega rætt um eitthvað krassandi í leiðinni. Je Je Je! Dolce & Gabbana Girls Go Reykjavík!!!
Ég held ég sækji um að fara til Slóveníu sem skiptinemi. Svei mér þá ef ég er ekki bara eiginlega alveg ákveðin. Ef ekki þá er það Réunion...

<< Home