lowlý lúla
já svona er það nú. Ég er loks komin með þráðlausa nettengingu í skólanum sem þýðir það að ég læri ekki neitt heldur hangi bara á netinu og downloada af soulseek. Það eru tveir og hálfur tími síðan ég settist niður í Odda með það í huga að fara að læra en ég hef ekki litið af skjánum nema bara til að passa mig á að miða rétt og hitta í hnetupokann sem ég tók með mér...
Ég er að fara í lokapróf eftir tvær vikur, ég var að fatta það núna áðan. Afhverju líður tíminn alltaf öfugt við minn vilja? Annað hvort allt of hægt eða allt of hratt... Kannski er ég bara allt of... hvað kallast það þegar maður er bara duglegur við að gera hluti sem maður á ekkert frekar að vera að gera?

<< Home