"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

miðvikudagur, mars 01, 2006

jóhó jú ho´!

Liðin er alveg hreint yndisleg helgi:

Dolce&Gabbana kvöld - ég svala og rósa maría í okkar fínasta pússi að drekka kokteila og borða fínerí heima hjá mér. Fórum svo niður í bæ og djömmuðum all svakalega.
Á laugarskvöldið fórum við svo á Ælu tónleika. Þeir voru frabærir, góð stemmning og skemmtilegir tónar. Síðan var tekinn upp þráðurinn frá kvöldinu áður og skellt sér á pöbbana.

Ég er orðin sannfærð um að bar 11 er besti staðurinn í Reykjavíkinni. Það var svo gaman að tjútta þar. Kaffibarinn var ekki alveg að meika það, Hairdoctorinn var að dj-ast á föstudagskvöldið, djís! Maðurinn er að missa sig í e-u egóflippi. Greyið strákurinn var í því að blikka sjálfan sig í speglinum meðan hann þeytti miður skemmtilegum skífum. Maður verður samt að gefa honum kredit, það er ákveðinn árangur að ná að vera frægur fyrir það eitt að vera hárgreiðslumaður. En allt í allt var þetta frábært! Við hittum helling af skemmtilegu fólki, tjúttuðum, kjöftuðum og drukkum. Grerist ekki betra. Þetta verður sko endurtekið á næstunni!

Helginni lauk svo með heljarinnar afmælisveislu fyrir Kristófer Árna, litla frænda, heima hjá mömmu og pabba. Gott að fá gott að borða í þynnkunni.

Ég var að fá e-mail frá hákólanum í Ljubliana með upplysingar um alla kúrsana sem eru í boði á næsta skólaári. Ég fékk alveg í magann af spenningi! Ég vona að ég komist þarna inn...

Þarf að fara að svara könnunum fyrir aferðafræði. Ég átti að gera það í gær en gleymdi því -úps!

|