"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

fimmtudagur, september 16, 2004

frunsufiðringur

jo jo jo! Getiði hvað!

Ég (a.k.a talvan hans pabba) er komin með ADSL - vúbbíííííí!!! Þvílík endalaus úber hamingja!


Viðgerðin á bílnum mínum er búin að gera mig nærri því gjaldþrota, eða ég segi sjálfri mér það. Ég held að nám í tónlistarskólanum, tamning fyrir hestinn minn, jóga- og afrónámskeið í púlsinum og miðar á Blonde Redhead og Damien Rice eigi kannski einhvern þátt í því líka. Ég held ég megi þetta samt alveg, það er haust sem er b.t.w. versti tími ársins (jú víst!) og ég verð að gera e-ð til að komast í gegnum það. Þannig að með því að setja sjálfa mig í alvarlegan fjárhagsörðugleika næ ég kannski að gleyma grámyglunni í kringum mig. OG ef einhver reynir að sannfæra mig um að haustið sé æðislegt þá sparka ég í sköflungin á honum! Tókuð þið eftir veðrinu í nótt, ha hA HA!?

Annars er ég að reyna mitt besta til að halda mig frá djammi núna, er orðin svoldið þreytt á því. Ég er örugglega svona leiðinlega edrú, allavega þá fyllti pabbi mig síðustu helgi og afi skutlaði mér niðrí bæ... ég skemmti mér samt alveg konunglega verð ég að segja.

Á laugardaginn er svo margt í gangi, tvö partý: eitt í kef og hitt í rkv. Síðan er smá sýning hjá öldu design og brúðkaup hjá frænku minni. Svo ekki sé minnst á það að ég þarf einhvern veginn að redda miðunum á Damien rice. Þarf maður ekki að mæta tímanlega og bíða í röð? Sé til hvað ég geri, kannski maður bara beili á þessu öllu saman. Vídjó og snakk hljómar eitthvað svo vel í svona tussuveðri.

|