"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, mars 11, 2005

tsuke aiko wakasaki

Ekkert kemur mér jafn mikið í föstudagsfíling eins og ca. 10 mín löng Queen syrpa sungin á einhverju sem líkist japönsku. Vá hvað það er hressandi! Það er líka gott fyrir föstudagsfiðringin og bara allar taugar líkamans að vakna kl. 5 á morgnana og fara út í yndislega frískandi stillu og bera út blöð. Það sem gerði blaðburðin sérstaklega góðan í dag var sú staðreynda að það byrjaði að birta til um 7 í morgun. Þetta þýðir aðeins eitt: vorið fer að koma og það er svo frábært því vorið er uppáhaldstíminn minn! Áður en ég veit af verður komin svona sumarlykt í loftið og fuglasöngur og morgunsól þegar ég er að bera út. Það er bara smá páskahret eftir og svo kemur vorið mitt! jei!

Hitt sem mér er mikið í mun að tala um er Hróarskelda. Ég er búin að tala við svoldið marga sem langar geðveikt að fara en eru ekki vissir og allt þar fram eftir götunum. Ég, Gugga og Thelma vorum eiginlega alveg ákveðnar í gær að fara en erum líka alveg til í að prófa eitthvað nýtt... ég veit að Rósa María og Svala eru sama sinnis... Roskilde stendur samt alltaf fyrir sínu... mig meira að segja dreymdi í alla nótt að ég væri þar og það var avleg yndislegt, glampandi sól og blíða, ýkt mikið af fólki og bara yndislegheit út í gegn.
Hverjir eru að spá í að fara og hverjum langar að fara og hverjir eru alveg ákveðnir að fara? Það væri gaman að fá smá mynd á þetta...

|