"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, mars 06, 2005

brite liner

Jæja, þá er ég orðin alveg eitur hress! Ekkert fær mig stöðvað! Það besta við að vera veikur er þegar manni er batnað og finnur ekki fyrir neinu nema þakklæti...

Ég var að enda við að horfa á CSI NY sem eru alveg að virka á mig, ég held þeir geti orðið svoldið skemmtilegir alveg eins og CSI og CSI Miami, allt tussugóðir þættir að mínu mati. Ég græt þó enn þættina Dead like me, það voru sko uppáhaldsþættirnir mínir í öllum heiminum! Horfði líka á heimildarmynd um Sex Pistols um daginn, mæli með því að allir sjái hana, hún var mjög áhugaverð. Ég held hún heiti bara Sex Pistols, breski fáninn er á hulstrinu. Jamm vikan mín er s.s. ekki búin að vera mjög uppátækjamikil ef ég á að vera alveg hreinskilin...

Svala kom í heimsókn til mín í gær með alveg hreint æðislegar myndir frá ATP. Ég trúi því varla að þessi helgi sé búin, maður bíður og bíður í marga mánuði eftir einhverju ákveðnu og svo er það bara orðið að minningu... en alveg ótrúlega góðri minningu samt!

Hey já, svo er það í fréttum að pabbi minn var að kaupa sér mótorhjól - ekki eitt, heldur tvö stykki. Eitt fyrir heiðina og annað fyrir veginn, allt mjög rökrétt sko! Hann er búinn að lofa að kenna mér á krossarann þannig að núna hef ég geðveika afsökun á daginn til að vera ekki að læra - JESS! úps, sagði ég þetta upphátt...ég var bara að djóka... í alvöru, mér finnst gaman að læra... hmmm, tryllitæki milli fótanna á mér eða bók í hendinni? einhverra hluta vegna finnst mér bókin hljóma betur nuna í augnablikinu. Ég ætla upp í rúm að lesa um fólk í fjarska, sjáumst!

|