"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

fimmtudagur, mars 03, 2005

du du du durumm dududu dudu du du durum dududu

Wowowowowowowowwwooow! Ég er svo hress maður!

Dagurinn í gær einkenndist af c- vítamíni, verkjatöflum, hóstasafti, hálstöflum og tei. Mér leið eins og hálfgerðum aumingja, sérstaklega í nótt þegar ég var búinn að vera að horfa á sjónvarpið niðri og hreinlega hafði ekki orku til að hreyfa mig. Ég grét, því mér leið svo illa og mig langaði svo að tannbursta mig en ég gat ekki gengið upp tröppurnar. Ég svaf því bara á sófanum og vaknaði kl.7 í morgun, fór aftur að sofa og vaknaði kl.6 í dag. Mér líður betur, vá hvað ég er hamingjusöm! Sérstaklega útaf því að nú get ég einbeitt mér að því að rifja upp helgina sem leið. Ég held þetta hafi verið með betri helgum lifs míns. Yndislegt! Það gekk allt eins og í sögu, allt var eins og ég vildi hafa það, hópurinn var æðislegur og tónlistin frábær.

Ferðin byrjaði æðislega, ég og gugga stungum restina af liðinu af og fórum beint til Rye eftir að við lentum á fimmtudeginum. Við vorum engan vegin í stuði til að vera að hanga í London með allt draslið okkar. Þegar við komum til Rye fórum við með töskurnar okkar á hótelið sem var alveg yndislegt, gömul vindmylla sem var búið að gera upp. Við skelltum okkur svo beint niðrí bæ, sem var bara nokkrum skrefum frá hótelinu eins og allt annað í Rye því það er ekki stór bær. Við tókum röltið í svoldinn tíma og áttum erfitt með að halda aftur af okkur, Rye er svo yndislega fallegur bær! Við kíktum á the George, fengum okkur bjór og spjölluðum um heima og geima, fórum svo á indverska veitingastað þar sem þjónarnir áttu svoldið erfitt með að tjá sig en sögðu thank yooou, thank yooou við hvert tækifæri. Megnið af hópnum kom svo til Rye um kvöldið, við fengum nokkra bjóra og bara spjölluðum og höfðum það gott og fórum svo frekar snemma að sofa.

Ég er að átta mig á því að ef ég fer svona nákvæmlega í allt sem gerðist um helgina þá verður þetta blogg allt of langt. Ætla að tipla á aðalatriðunum...

Helgin einkenndist af brjáluðu djammi, mikilli drykkju, frábærri tónlist og yndilegum vinum. Það er erfitt að segja hvaða hljómsveitir stóðu upp úr því þær voru svo margar, en mér dettur fyrst í hug: deerhoof, the melvins, need new body, slint, endless boogie og mogwai. Eftir tónleikana tók svo við djamm fram á rauða nótt, dj-ar í litla salnum að spila geðveika tónlist og svo náttúrlega pöbbinn á svæðinu og svo partý í íbúðunum. Ég held einmitt að ég hafi farið í eitt brjálaðasta partý ever í herberginu hjá Halla Valla og strákunum. Ég var næstum edrú þegar ég kom þarna inn þannig að ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að haga mér. Ég man eftir einu augnabliki þar sem ég horfði yfir herbergið, það var nýbúið að skrifa á veggina með tómatssósu, það var verið að skvetta einhverju yfir fólkið sem stóð í eldhúsinu, gugga og Jo voru að heila Ævar og dansa orkudans í kringum hann til að reyna að fá hann til að vakna til lífsins og Svala og Rósa voru að pósa fyrir myndavél eins og þær væru ofurfyrirsætur. Á þessu augnabliki varð mér ljóst að eg þurfti að detta í það.

Það eru nokkrar aðrar eftirminnilegar stundir sem poppa upp í hugann: Ég, Rósa og Svala að syngja scooter á fullu við mismikinn fögnuð viðstaddra, indverski gaurinn sem stal sjalinu hennar Svölu, perrinn sem sagði mér að ég minnti hann á barnapíuna hans, gellan sem reyndi að stela töskunni minni meðan ég var að kúka á klósettinu, "I´m flabergasted by my gullability" lagið sem ég og Sophie sömdum, pjöllusjóvið hennar Rósu, ónefnd(ar) manneskja/ur að flassa út um gluggan o.s.frv
o.s.frv o.s.frv... sem sagt allt saman eintóm hamingja og yndislegheit. Ég held ég fari pottþétt aftur á næsta ári. En næsta skref er þó að sannfæra sjáfa mig um að fara á Hróarskeldu í sumar. Er að spá í að plata bara fjölskylduna i að gera það að sumarferðinni okkar, fara öll saman á Roskilde. Það væri geðveikt!

|