"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, ágúst 28, 2005

vúbbdídú jibbíkóla!


ég gerði mér ferð í Reykjavíkina í dag og fékk afhenta lyklana af íbúðinni minni. Geggjað stuð og skemmtilegheit!

Það fyrsta sem flaug upp í huga minn þegar ég kom að húsinu var hvernig svalirnar yrðu. Ég vonaði að þær myndu ekki snúa beint út á Suðurgötuna og umferðina þar. Heppnin reyndist með mér. Ég er örugglega með bessssta útsýnið í húsinu, bara Öskjuhlíðina og lítla heiði sem ég hef ákveðið að nefna Linduheiði...

|