jísúss! Hættu að bögga mig!
Bleggadí bleggadí blu blu blu!!! uhm... átti að vera: bloggedí bloggedí blu blu blu!!! Þið megið velja.
jamm og já og hamingjusemiorkuskítur - JESS!
Er að flytja í bæinn, geggjað kúl gella á spítti. Eða svona ef ég væri á spítti þá væri ég geggjuð gella, a.m.k. geggjuð... eða dauð. Kannski myndi mér þá loksins verða e-ð úr verki, þ.e. ef ég væri á örvandi efnum, ekki ef ég væri dauð... annars veit ég ekkert um það því ég hef aldrei verið dauð, a.m.k. ekki þannig að ég muni eftir... ble...
Keypti mér Ginko bilboa gingsen blöndu í gær. Er að vonast til að ég hætti að vera letingji. Hingað til hefur mér verið alveg sama þótt ég sé löt og ótillitssöm og óstundvís og stend ekki við hluti og nenni ekki að plana og að það sé ekki hægt að stóla á mig. Það hefur ávallt farið mér bara alveg ágætlega, en maður verður víst að hugsa um þá sem eru næstir manni og reyna að verða betri manneskja. Ég lofa þó engu! Ég nenni heldur ekki að ganga í gegnum sama helvítið og fyrir síðustu próf og lenda á kaf í skít og hlusta á mömmu mína segja öllum að ég hafi fengið ekkert nema 9 í öllu því að hún vissi ekki betur og ég nennti ekki að leiðrétta hana. Ekki það að ég hafi ekki reynt það samt fyrst; „mamma, þótt ég hafi fengið gott í þessum eina frönskukúrs þýðir það ekki að mér muni ganga jafn vel í mannfræðinni. Ég er ekki búin að lesa NEITT af námsefninu og það eru 2 vikur þangað til prófin byrja". Hún skildi þetta ekki alveg... höldum því þannig.
Ég vil þó taka það fram að ég er ekki að koma með feitar yfirlýsingar sem ég þarf svo á éta ofan í mig í lok annar. Ég er bara að segja að ég ætla að reyna, ok?
Mig-langar-að-sofa-hjá-rokkara-eða-öðrum-listamanni-með-einhver-geggjuð-sérkenni-en-mér-var-einu-sinni-sagt-að-ég-væri-freðkunta-Jamm,- svona-er-nú-það-Over-and-out.

<< Home