"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, október 28, 2005

súperlangurpistill skrifaður af einstakri helvítis snilli

Þetta er búinn að vera geðveikur dagur. Þá á ég ekki við slangurmerkinguna heldur bara að hann er búinn að vera geðveikur í orðsins fyllstu merkingu.

Ég vissi strax á miðvikudaginn að hann myndi byrja illa. Í gærkveldi var ég orðinn þess fullviss þegar ég heyrði í rokinu fyrir utan gluggann minn. Í morgun fór ég á fætur kl.4.45, snúsaði tvisvar og var því komin endanlega framúr fimmmínútúryfirfimm. Tvöfaldur fokking blaðburður! Á miðvikudaginn hafði ég fengið hringingu frá fréttablaðinu og ég spurð hvort mér þætti það ekki súpergóð hugmynd að taka auka hverfi á föstudaginn. Mér fannst það alls ekki súpergóð hugmynd en sagði engu að síður já því að ég er bjálfi.

Mér hefur hingað til ekkert þótt það svo mikið mál að bera út á morgnanna en þessi morgunn var meira en erfiður. Á ákveðnum tímapunkti langaði mig að fara að grenja úr gremju yfir þessu öllu saman. Það er s.s. lítið mál að taka aukahverfi en ekki þegar það tekur mann tuttugu mínútur að dröslast með blaðastaflana þangað, á móti vindi, í stinningskulda, með aukablað af Birtu fyrir hvert hús, eftir að maður er búinn að bera út í hverfið sitt. Ég var 3oghálfantíma að bera út í morgun, venjulega er ég rúman klukkutíma. Fyrsti einioghálfitíminn fór í það að blóta í hljóði og vera pirruð (eitthvað sem ég geri sjaldan því mér finnst það ekki gaman). Ég gekk um með blöðin, foxill út í sjálfa mig að hafa látið plata mig út í þessa vitleysu, ímyndandi mér alls konar senaríur þar sem hundmorgufúlt fólk tók á móti mér í næsta hverfi og kasta blöðunum í hausinn á mér fyrir að vera allt og sein, fréttablaðið að hringja í mig og segja mér að mér hafi borist kvörtun og ég öskrandi í símann að ég hefði þá betur átt að sleppa því að taka þetta fokking aukahverfi! (Þetta gerðist allt í hausnum á mér, ekki í alvörunni. Ég veit ekki hvort er verra).
Þegar ég var svo loksins komin í þetta blessaða aukahverfi þá fór mér að líða svoldið jólalega og tók þá ákvörðun að ég mætti ekki vera í vondu skapi því jólin væru að koma. Í hálftíma náði ég að halda mér brosandi og glaðri með því að syngja alls konar tilfærslur af sömu þremur jólalögunum. Eftir það urðu skrefin vélræn, hugurinn tómur og fingurnir aumir af kulda. Þegar ég var loks búin að bera út var mér alveg sama þótt fólk væri að glápa á mig á leiðinni heim, labbandi með fréttablaðskerruna kl. 8.30 um morguninn.

Morgunmaturinn var góður: hafragrautur með sykri og kaffi útá (á ekki til mjólk), hrökkbrauð, te, vítamínvatn og svo bollasúpa stuttu seinna. Allt heitt og gott. Tók smá geðveiki heima hjá mér og náði að fara yfir allan tilfinningaskalann á mjög stuttum tíma, en þó allt mjög dempaðar tilfinningar eins og mér einni er lagið. T.d. náði ég að verða mjög pirruð þegar ég setti Bowie á fóninn en var alls ekki í stuði til að hlusta á hann. Það þaut upp lítið aarghh! í hausinn á mér og ég hljóp að græjunum og setti Omar A. Rodriguez Lopez í spilarann og hlustaði á pabba hans syngja á spænsku. Þá fór ég úr fötunum og dansaði. (Bara svo þið vitið það þá er Omar ótrúlega sætur fyrrverandi dópisti og gítarsnillingur með afró, hottie sko. Það að ég skildi fara úr fötunum hefur þó lítið með hann að gera, ég þurfti einfaldlega að skipta um föt).

Ég hrópaði líka þrefalt húrra þegar ég fór á klósettið að kúka. Ég er farin að hafa óstjórnlega gaman af því þegar ég þarf að kúka, stundum drekk ég þrefaldanbombuexpresso og fæ mér sígó bara til að gá hvort ég þurfi ekki örugglega að fara á klósettið á eftir. Stundum fæ ég bara hræðilega í magann... ég held ég þurfi að fara finna mér áhugamál... Ég tel þó að þessi áhugi sé aðallega tilkomin vegna þess að nú, í fyrsta skiptið á ævinni er ég ein um klósettið heima hjá mér.

Eftir þennan líka frábæra vitskerta morgunn dröslaði ég mér á Landsbókasafnið (sem ég kýs að kalla Bókó því það er svo kúl og auðvelt að bera fram). Nú ætti ég að vera að vinna í ritgerðinni minni um örlög neandertalsmanna, sem ég átti að byrja á í gær en gerði ekki því ég var sofandi - í allan gærdag... gaman að þessu. Mætti þó allavega á kóræfingu kl.18.00
Það er svo margt sem mig langar að skrifa en ég verð víst að hemja mig... svona er bara þjóðfélagið í dag, það verða að koma auglýsingar á milli svo að við þurfum ekki að hugsa of mikið. Kannski ég skrifi bara annan pistil á eftir þegar ég þarf pásu frá mínum ástkæru neandertalsmönnum...

Velkomin í hugarheim Lindu tott, vona að þið njótið vistarinnar hér... mér finnst hún ágæt. Það er kannski ekki að marka það, ég er föst hérna...

|