"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, september 30, 2005

hann sagði balður...nei blaður

h-A? hó hóhóHóÓÓóóóóóó Lóla pönk er einhvers staðar inn í mér, einhvers staðar... Jamm þarf að virkja hana, rebellinn og rokkskvísuna. Jó jó jóðl!

Hakandi hakandi kakahi kakadúi búi í búri

Hef ekkert að segja, sorry, don´t worry even though you´re a whore - í .bala, dalalæðunni blæðir yfir fjörðinn... svona virkar heilinn í mér - ekki alltaf svo vel.

Mig langar í bío og borða nacho´s með ostasósu... get það því að á næstu dögum fæ ég frítt á u.þ.b. 60 bíómyndir. Jamm er með passa á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina. Á það líka alveg meira en skilið því ég var alveg ótrúlega dugleg að vinna fyrir hátíðina. Búinn að skjótast um allan bæinn, sækja þetta, skutla hinu og ég rata ekkert í Reykjavík! Mér leið líka eins og ég væri í ratleik eða sjónvarpsþættinum á stöð 2 þar sem pör eru í keppni um hvert þeirra sé best að ferðast og ekki missa vitið í leiðinni... Ég standsetti líka Tjarnabío (sem er b.t.w. alveg æðislega krúttulega gamalt og sætt bíó og mér þykir barasta vænt um það núna...), þannig að ef þið farið þangað á meðan hátíðinni stendur, þá getið þið séð hvað sælgætinu og gosinu og plakötunum er vel raðað og hvað allt er fín. Ég hitti líka Pál Óskar og hann hjálpaði mér að fylla á kælinn og hengja upp - ógó duglegur. Ég man hvað ég var skotin í honum þegar ég var gelgja - djíss. Stanslaust stuð að eilífu!!! Þetta er sko klassík!

Jamm en ég reyni mitt besta að fara á filmfest, ásamt því að læraeinsogfatherfucker og keyra alltaf á kvöldin út í Garð til að gista þar. Elskulegir foreldrar mínir ákvaðu nefnilega í gær að skella sér til útlanda og fóru bara í morgun. Oh my God, þau hafa þá örugglega verið samferða henni Guggu minni snilling til Glasgow!
Mamma og pabbi verða s.s. í útlöndum um helgina og ég þarf að fylgjast með bræðrum mínum á meðan. Aðallega þó Óla því hann er svo mikil villingur og er bara 15 og má ekki djamma eða leyfa kærustunni sinni að gista. Muggur er 11 og það er ekkert vesen á honum. Maður þarf bara að hringja svona 3 á dag til að minna hann á að fá sér að borða og segja honum að fara í sturtu þegar það er kominn tími á það og svoleiðis... jamm fjör hjá mér þótt ekki sé djamm í boði. Læri læri læri, það er málið og ég fæ ekki einu sinni lambalæri í sunnudagsmat því mamma mín verður í Glasgow...

ok, ég náði þó alveg að skrifa slatta þrátt fyrir það að hafa ekkert að segja...

|