Hólýcow
Haldandi þétt um neistann hlóð hann upp síðustu hálmstránum. Tökin á honum. Tökin um hann. Hann hélt á afhöggnu höfði hennar, sofandi hinum eina sanna svefni. Vakandi og skýr hugsunargangur hans blindaði hann eitt augnablik. Fjarðlægðin svo nálægð að hann fann lyktina af henni. Hlutgervingar hörmunganna ómuðu í afskornu höfðinu. Tónalitirnir dönsuðu og umvöfðu þau. Fortíðin farin að eilífu. Ekkert er afturkræft. Ekkert er afturkræft. Hallandi sér að gangstéttinni hlóð hann upp minningunum, síðustu forvöð. Allt var eins og það hefði aldrei átt að verða.

<< Home