hræddurhelgur
Ok allir...
FARIÐI Á MYNDINA SCAREDSACRED EFTIR CANADAMANNINN VELCROW RIPPER
...ótrúlega falleg og áhrifamikil mynd um vonina sem fólk hefur þótt það hafi gengið í gegnum helvíti á Jörð og horft illskuna beint í augun. Leikstjórinn fór í 5 ára ferðalag til staða þar sem fólk hafði upplifað miklar þjáningar og fann hjá þeim ótrúlega von. Nafnið á myndinnni er dregið af svona athöfn sem snýst um það að anda inn þjáningunni og umbreyta henni í jákvæða orku sem maður andar svo frá sér. Hljóðið í myndinni er líka alveg ótrúlega flott enda er maðurinn líka hljóðhönnuður.
Þess má geta að ég fór á námskeið um heimildarmyndargerð hjá honum í gær og það var alveg ótrúlega forvitnilegt að fá að rýna í þennan heim...
Skoðið líka heimasíðuna hans: www.scaredsacred.org
Allir á Alþjóðlegu Kvikmyndarhátíðina!!!

<< Home