klukkómania
ok, ég hef verið klukkuð... 5 tilgangslausar staðreyndir um mig... eða hvað... kannski er þetta allt saman lygi Muahahahahah he?
:Ég er annað hvort kölluð Linda litla eða Linda tott. Bæði nöfnin eru algjörlega útíhött og eiga ekki á neinn hátt við mig. Ef einhver af ykkur er að hugsa;„en hún er geðveikt lítil" þá skuluð þið vita það að ég er þessu algjörlega ósammála. Tott nafnið er tilkomið því ég bað Brynju einhvern tímann um að kalla mig eitthvað annað en Lindu systir hans Magna. Henni fannst þetta víst e-ð sniðugt.
:Fólki finnst ég skrítin (ég er þessu líka algjörlega ósammála, þótt ég vilji þó síður teljast bara venjuleg því það er bOrInG. Ég myndi frekar segja að ég sé svona litrík manneskja...)
:Fjölskyldan mín er skrítin (þessu er ég sammála og get með engu móti neitað)
:Ég á fjöldann allann af vinum en megnið af þeim býr í höfðinu á mér...
:...ok, ég er kannski svoldið skrítin.
Mér fannst aldrei gaman í svona klukkleikjum þegar ég var lítil (jebb er stærri nú en þá!) því þá þurfti maður að hlaupa og ég þoldi ekki að þurfa að hlaupa því ég var þybbin og fannst óþægilegt, leiðinlegt og vont að hlaupa. Nú þurfti ég ekki að hlaupa þannig að það er OK en ég þarf að læra því ég var búin að segja sjálfri mér að ég mætti bara vera í tölvunum í korter og ég er núna búin að vera í 16 mín. og á eftir að logga mig út og allt. Hausinn minn er að springa því það er svo margt sem hann þarf að gera enn hann nennir því ekki.
Ég klukka alla kallana í hausnum á mér klUkK KluKK kLuKKeTíKlukKKKKKKK

<< Home