"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, október 18, 2005

fyrilestur,verkefni,lífið o.fl...

Það er ótrúlegt hvað maður finnur alltaf fyrir miklum létti þegar maður er búinn að halda fyrirlestur. Við erum búnar að vera að hittast núna 3 skvísur til að vinna í honum annars lagið síðustu 3-4 vikurnar og svo í dag bara pfúff! ótrúlega þægileg tilfinning.

En já þá tekur bara næsta við. Á eftir að gera verkefni fyrir ritlist á morgun. Atburðarrás og samtal sem á sér stað milli tveggja einstaklinga sem eru fastir í lyftu... ég er frekar tóm núna, mér fannst síðasta verkefni miklu skemmtilegra. Þá áttum við að fara í einhvern kirkjugarð og kíkja á legsteinana og reyna að skapa persónur út frá því sem við skoðuðum þar. Skoða nöfnin, ártöl, hvernig ákveðnar grafir tengjast. Ég varð svo djúpt snortin þegar ég sá nokkur leiði saman. Ung kona og barn sem dóu með dagsmillibili. Hún hefur líklega dáið við barnsburð. Maður hennar grafinn við hliðina ásamt einhverri sem virtist vera seinni kona hans og svo uppkomin manneskja, líklega dóttir hans og fyrrum konunnar.
Mér hefur alltaf fundist svo magnað að ganga um kirkjugarða og skoða legsteinana og ímynda mér hvað hafi gerst fyrir fólkið, hvernig líf þeirra hafi verið, sorgina sem umlykur sumar grafirnar t.d. þegar 3 ungabörn með sama eftirnafn liggja hlið við hlið. Það er eitthvað svo fallegt við kirkjugarða, það er líka stundum gott að láta hræra upp í sér, tilfinningum sínum og sjá hvað lífið er dýrmætt.
Ég fór einmitt í Suðsuðvestur á sunnudaginn og fann mjög svipaða tilfinnigu þ.e. dauðinn sýndur á svo fallegan, rólegan og viðkvæman hátt. Þótt að allt væri svarmálað þá var þetta ekkert scary heldur bara fallegt. Bara hugrenningar manns sem þorir að horfa dauðann í augun. Eða kannski nær hann að umfaðma líf sitt. Ég mæli með því að allir kíkji þangað um næstu helgi því svo verður rýminu breytt og allt tekið burtu sem áður var. Ég hlakka bara til að sjá hvað kemur næst...

Ég þarf líka að hefjast handa við að skrifa ritgerðina mína og smásöguna. Er ekki alveg með hugann við þessi verkefni. Verð eiginlega að hefjast handa við þau áður en helgin hefst því það verður lítið lært meðan maður er á rasandi fylleríi niðrí bæ að reykja Virginia síg-ó-rettur og drekka viskí. Það væri samt gaman að sjá hvort maður fái einhverja góða hugmynd að smásögu á skrallinu um helgina. Ég ætla að vera með augun og hugann opin...

|