"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, október 07, 2005

lunaticóssss - Búmm selcta!

All right you fuckers!!!

Hvað getur maður sagt? hmmm...

ég held ég sé að missa vitið, ég var eiginlega bara að átta mig á því í gær. Ég var spurð af kærri vinkonu minni hvernig mér finndist það eiginlega að vera svona alein og ég sagði henni eins og er að mér finnst það frábært! Um kvöldið áttaði ég mig á því að kannski finnst mér það aðeins of frábært... ég held að ég sé varasamur félagskapur fyrir sjálfa mig og að ég hafi neikvæð áhrif á þá sem eru í kringum mig núna (þ.e. á mig sjálfa því ég er eina manneskjan sem er í kringum mig núna)...(hvernig getur maður eiginlega verið í kringum sjálfan sig? Ég veit það ekki en mér virðist takast það alveg ágætlega, kannski er ég bara með svona feita áru...)

jamm, mig langar ekki að vera í skóla ,mig langar ekki að vinna, mig langar ekki að eiga samskipti, mig langar ekki að þurfa að gera neitt sem er kvöð, mig langar ekki að gera neitt nema akkúrat það sem mér dettur í hug á þeirri stundu og EGÓið mitt er þvílíkt að hvetja sjálfa mig í þessu öllu saman! Í gær svaf ég til kl. 5. Ég var þreytt. Afhverju? Því að ég nenni ekki alltaf að fara að sofa og svo eftir nokkra daga verð ég þreytt. Í gamla daga tók það nokkrar vikur áður en ég þurfti að hlaða batteríin. Þetta er merki um það að ég sé að verða gömul, eða að ég sé orðin gömul. Kannski er það bara málið? Ég er orðin gömul og langar bara að hanga. Hvað er það svona mikið sem ég vil þá gera í staðin fyrir það sem ég á að vera að gera? hmmm... mig langar að liggja í rúminu mína og hlusta á tónlist í marga klukkutíma, fara í gönguferðir, drekka kaffi og reykja virginia sígó-rettur, mig langar að dansa og hoppa í stofunni og eldhúsinu og standa upp á stól, mig langar að horfa í spegilinn og gretta mig alls konar og setja upp America´s Next Top Model lúkkið mitt og hlægja ógeslega mikið og mig langar að ímynda mér senaríur sem eiga aldrei eftir að eiga sér stað hvort eð er, þannig að það er allt í lagi að láta sig dreyma um þær því að þá hafa þær a.m.k. næstum því gerst...

æi þið vitið, svona skemmtilega kæruleysislegir hlutir...

Er þetta eðlilegt? NEi. En hvað er svo sem gaman við það að vera eðlileg?

|