Phantasmagoria
Það er alveg ótrúlega stutt þangað til að ég fer út!!!
Ég hlakka eiginlega bara alveg jafn mikið til að hanga í London og að fara á hátíðina. Þetta er allt planað, við skvísurnar ætlum í Camden að versla og í hjálpartækjabúð og svoleiðis. Miðvikudagurinn og fimmtudagurinn fer því líklega í búðarrölt. Svo á hún rósa Dolce & Gabbana girl afmæli á miðvikudeginum þannig að það verður líklega farið einhvert að éta...
Mér tókst loksins að selja merina mína, eða mamma gerði það fyrir mig... fyndin setning: Mér tókst að selja merina mína... en já það liggur engin önnur merking að baki þessum orðum nema bara þetta að ég átti hross sem var kvenkyns sem einhver annar á núna... Mamma sagði reyndar að ég hefði ekki fengið neitt fyrir hana. Þetta færi allt upp í skuld útaf öllu veseninu á mér. Ég veit nú ekkert hvað það á að þýða... Vonandi fæ ég allavega nóg fyrir jólagjöfum og kannski svona einum kjól... og til að halda mér uppi á barnum í svona ca 6 daga...
Jamm farin heim að elda, það eru svona þrír klukkutímar síðan ég byrjaði að verða svöng og þetta er ekkert að skána. Best að kippa því í liðinn! Fajitas - mmmmm. Óskið mér góðs gengis, vona að maturinn verði ætur. Gott að bíða þangað til maður er alveg að sálast úr hungri, þá er maður tilbúinn að éta næstum hvað sem er... næstum.
Ég ætla líka að tékka á diskum úti. Ætla að kíkja á eina grúppu sem heitir Handsome boy modeling school. Víst þeir sömu og gerðu Music to make love to your old lady by...

<< Home