verkefnin og framtaksleysið
Jamm, þá er ég búin að skila ritgerðinni minni um mína ástkæru Neandertalsmenn... í bili a.m.k.
Nú er það smásagan, hún stendur svo í mér að ég er að kafna á henni. Ég er s.s. ekki byrjuð á henni... ok, það er kannski ekki hægt að segja að ég sé ekki byrjuð, ég er með nokkrar hugmyndir, er búin að skrifa niður um 5 hugmyndir af smásögum. Komin með persónulýsingar fyrir nokkrar manneskjur, svona uppflettilista þar sem allt er talið upp. Frá augalit til áhugamála, til dýpstu leyndarmála, til stjórnmálaskoðana og s.frv... Er líka komin með einn endi.
Málið er bara að mig langar ekki að nota neitt af þessu, er eiithvað andlaus og vantar innblástur. Það er líka vitleysa í mér að vera að gera þetta um miðjan dag. Ég er betri í svona hlutum á nóttinni, ellin er bara farin að segja til sín þannig að ég virðist þurfa meiri svefn en venjulega... Ég veit ekki alveg eftir hverju ég er að bíða - meistaraverkinu? Common! Þetta á ekki að vera nema svona 3 blaðsíður, ein lítil smásaga um hvað sem er. Viðfangsefnið gæti ekki verið auðveldara. Ég hef til miðnættis í kvöld.
Ég loka mig af inn í hugarheiminn minn til miðnættis. Fjólublár orkuhjúpur umvefur mig. Hugmyndastreymið hefst... núna..
Oh, hvað það væri nú gott að fara á kaffihús með fartölvuna og fá sér kaffi og sígó á meðan maður lætur hugann reika um staðarhætti og atburði sem eiga heima í kollinum á sér...

<< Home