"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, nóvember 11, 2005

reina, reina mi da ble ble, di dede da...

Jamm heil og sæl og verið þið blessuð öllsömul.

Setning vikunnar er búin að vera; „ok, nú verð ég að vera dugleg!"

Þetta þýðir samt ekki að ég sé búin að fara eftir þessum orðum. Það er líka mjög loðið hvað það er að vera duglegur. T.d. segir þessi setning mér ekkert að hvaða leiti ég á sýna þennan dugnað. Þannig að í raun er ég alveg búin að vera dugleg - að gera það sem ég ætti helst ekki að vera að gera... eða réttara sagt að gera ekki það sem ég ætti helst að vera að gera... skemmtilegt er að leika sér að orðum.

Dagurinn í gær fór í það að vera módel (jamm sumir eru nefnilega svo mikið bjútí - ehemm!) Ég komst að því að ég er ekki þessi týpa sem meikar það að vera stífmáluð í langan tíma, en það var samt gaman að líta í spegilinn og sjá svona rétt áður en maður skóf drulluna framan úr sér. Svo fór restin af deginum í það að redda kökum og taka til. Það er nefnilega fjáröflun í gangi fyrir Háskólakórinn. Hún hófst með kökusölu í gær. Planið er að skella sér á kóramót í Finnlandi í vor. Þannig að þið mínir kæru vinir megið búast við því að ég hringi í ykkur upp úr þurru og reyni að selja ykkur klósettpappír eða eitthvað annað álíka nytsamlegt svo ég geti skellt mér til útlanda í maí. Verðugt málefni, ekki satt?

Ég er að fara að vinna í nótt á 22 og hlakka bara til. Síðasta vinnuhelgi var mjög skemmtileg og ég trúi ekki öðru en að þessi muni vera það líka. Alltaf gaman að vera í kringum fullt fólk... væri skemmtilegra ef ég væri full sjálf en maður fær víst ekki að gera allt sem maður vill.

Ég hef ákveðið að veiða mér eins og eitt stykki mann bráðum. Ekki bara einhvern, heldur einn sérstakan. Það er leyndó, sko! Ég veit ekki einu sinni sjálf hver hann er...

...ok, nei þegar ég hugsa mig betur um þá er það sem ég var að segja rétt áðan kjaftæði og hef ég því ákveðið að andmæla sjálfri mér og koma með breytingartillögu. Hún hljóðar svo: Ég hef ákveðið að forðast þennan mann eins og stóra hrúgu af rjúkandi kúamykju og ekki láta íslenska drauminn glepja mig. Ég hef ennfremur ákveðið að kaupa mér kanínu (sem er ekki loðin og lifandi og bara fyrir stelpur). Breytingartillaga samþykkt með öllum mínum atkvæðum.

ég er að fara á ATP Nightmare Before Christmas og er með drullu af spenningi! Er alveg að missa mig því ég hlakka svo til. Kannski kem ég auga á litlu ofurkrúttuðu afrógaurana mína. Kannski verða þeir í níðþröngum svörtum rokkaragallabuxum hoppandi upp á sviði. Gæti lífið verið betra... já eflaust, en það er ekki í boði þannig að ég er sátt með það sem ég hef. Eina sem ég þarf er far til Englands svo ég komist á hátíðina... Kannski ég ætti að halda kökusölu til að fjárefla það... Það er sko málefni!

|