senore, senore, senore - besa me!
Jamm og jú...
Ég er loksins búin að kaupa mér flugfar til Englalandsins góða. Ég húkka mér far með Icelandair þann 30. nóv og kem heim á þriðjudeginum 6. des. Jamm svo er það bara lokaprófið. Ég ætla að hætta að þykjast - ég er í djúpum skít. En hey! Lífið er til þess að njóta þess og ég ætla að gera það. Ég læt engin próf stöðva mig...
Flugfarið var samt alveg massadýrt eins og við var að búast þegar maður pantar það á síðasta séns. Ég er búin að tala við Gauju sem er yfir á 22 og hún tók vel í það að ég myndi auka aðeins við mig vinnuna þar. Það verður fínt ef ég get bara unnið þarna í jólafríinu á daginn og svona, a.m.k. fengið nokkrar aukavaktir.
Mér er boðiði í partý í kvöld hjá hinni japönsku Aya. Það eiga víst allir að koma með eitthvað traditional til að setja á hlaðborð, voða spennandi. Simon sem vinnur með mér á 22 og er frá þýskalandi var samt að segja mér að það var víst eitthvað klúður og stelpan sem sér um skiptinemana hjá háskólanum hafi sent öllum e-mail um að það væri partý í kvöld og það mætti koma með einn eða tvo vini. Svoldið fyndið þar sem að það eru 600 skiptinemar sem hafa þá líklega fengið þetta e-mail. Greyið Aya, það verður nóg að þrífa hjá henni á morgun...
Mig langar alveg óskaplega í nýjan kjól, ég er alveg kaupsjúk en er að reyna að halda aftur af mér þangað til ég kem út og get fengið allt mun ódýrara. Ég var samt alveg að fara yfir um í fyrradag því ég sá tvo geggjaða kjóla sem mig langaði í og þeir kostuðu báðir yfir 8 þús krónur. Ótrúlegt hvað second hand föt eru dýr hérna heima... ok, samt ekkert svo ótrúlegt þegar maður pælir í öllum sköttunum og gjöldunum og því sem er sett á allt sem er pantað hingað heim. Það munaði s.s. engu að ég keypti þá báða en sem betur fer þá fór ég bara heim til að hugsa málið aðeins betur og er búin að forðast búðirnar síðan. Annars ætti ég tvo bleika undurfagra prinsessukjóla núna. Mig langaði líka bara svoldið að vera fín um helgina, í nýjum kjól og svoleiðis... jamm maður er nú svolítið hégómafullur... En ég læt þetta bara bíða í nokkra daga. Það verður sko dressað sig upp fyrir ATP martröðina. ú je! ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til!!!
Það skemmtilega við þetta allt saman er líka að ég fæ að hitta Jo og Guggu og Rai og Ben og það er svo gaman, gaman!

<< Home