"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, október 28, 2005

matselja óskast fyrir ekki neitt. Þarf að skaffa hráefnin.

ok, ég held ég þurfi bara að fara að sætta mig við það:

Ég kann ekki að elda!!!

næst þegar ég hugsa:„hmmm...hvernig ætli þetta verði ef ég set smá svona í matinn minn?" þá stoppa ég mig af áður en ég eyðilegg matinn og fæ brjálaða magapínu. Ég er þá líklega eina manneskjan í fjölskyldunni sem kann ekki að elda. Ég er enn að veðja á Mugg, hann er 12 ára og kann varla að fá sér að borða. Það er náttúrlega takmarkað hvað ein manneskja getur haft mikið af kostum, það virðist hins vegar með öllu ótakmarkað hvað er hægt að troða af göllum í mig.

ok, verð að snúa mér aftur að neandertalmönnunum mínum...

ú!ú!ú! gleymdi næstum að segja frá! Ég er komin með nýja vinnu. Frá og með kvöldinu í kvöld verð ég að vinna annan hvern föstudag og laugardag á 22! Byrja kl. hálf tvö í nótt. Ég held þetta verði æði.

ok, fokk! Maginn á mér er við það að springa... tómatsúpuógeðissullviðbjóður!

|