"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

miðvikudagur, mars 08, 2006

durummdrumm jeah jeah jeah!

ok, ég verð að komast til Slóveníu!!!

ég er nú á fullu að sækja um að komast þangað, það er alveg massa prósess og fresturinn er að renna út. Ég vona bara að skólinn úti sjái einhverja ástæðu til að taka við mér...

Ég er alltaf að verða spenntari og spenntari, er búin að kíkja á leigumarkaði á netinu, myndir af borginni og var núna að lenda inn á síðu sem er með upplýsingar um tónleika sem eru haldnir í Slóveníu. Þar á meðal er the Omar Rodriguez quartet nýbúnir að spila í Ljubljana og í apríl verða the FantomasMelvins Bigband með tónleika þar - ertu ekki að fokkings grínast í mér. Mig myndi langa að sjá þessar tvær ofur grúppur saman!

Jammm, það er sko allt að gerast í Slóveníu þessa dagana.... eða svona næstum því

|