Reykapíkuró
Garðurinn, hann er byggða bestur!
ég ákvað seint í gærkveldi að skella mér bara heim, það var gott. Það er alltaf gott að koma heim í Garðinn, borða mömmumat (sem að þessu sinni reyndist vera Kentucky Fried Chicken - ekki alveg uppáhaldið, en samt sem áður...) og chilla. Þar hef ég líka kost á þeim lúxus að sofna yfir imbanum, eitthvað sem ég get ekki gert í Reykjavíkurholunni sökum sjónvarpsleysis. Ég gerði það s.s. í nótt: dró fram sængina og lagðist upp í sófa, kisa lagðist ofan á mig og við kúrðum saman yfir svarthvítri bíómynd, saddar og sælar.
Dagurinn í dag fór svo í að chilla, hann átti nú að vera aðeins umfangsmeiri en það. Ég hafði ætlað mér að fara í heimsóknir, jafnvel á kaffihús eða bókasafnið og í SSV. En ég var bara heima, lá á misjöfnum stöðum í húsinu og borðaði mishollan mat, á misjöfnum stöðum í húsinu - aftur eitthvað sem ég get ekki alveg gert heima hjá mér. Það er í raun bara einn staður í Reykjavíkurholunni, ef frá er talið baðherbergið og ekki vil ég borða þar.
Svo fór ég í göngutúr og áttaði mig á því hvað ég er búin að sakna þess að labba út á Skaga, alltaf svo fallegt. Mér líður alltaf svo ótrúlega vel við það að labba hér meðfram fjörunni, ég held að þetta sé uppáhaldsstaðurinn minn í öllum heiminum! Svei mér þá.... ég hlakka til sumarsins, ég er orðin þreytt á núverandi tilvist, mig langar í eitthvað bjart og fallegt og nýtt og gamalt, allt í senn. Eittvað sem er yfirfullt af fallegum hljómum og samverustundum með ástvinum og fjölskyldu. Mig langar heim.
Eitthvað segir mér samt að eftir ca vikudvöl í Garðinum eigi ég eftir að þrá af öllum lífs- og sálarkröftum að komast aftur til stórborgarinnar - í næðið og sjálfskoðunina sem þar á sér stað.

<< Home