"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, mars 06, 2006

kaffi og eithvað - örsaga

Már hellti rjúkandi kaffinu ofan í fallega blómaskreytta bollann með titrandi hendi. Hann lagði frá sér litlu silfurlituðu mokkakönnuna á hitaplattan og bar kaffibollan að munni sér. Ilmurinn af tinnusvörtu kaffinu liðaðist inn um vit hans. Már dróg djúpt að sér andann og fann hvernig lyktinn sendi orkustrauma um allann líkamann. Morguninn tók a móti honum í gegnum um gluggann. Hann tók fram tóbakið sitt og hóf að vefja sér sígarettu. Margra ára reynsla hafði kennt honum að vefja næstum þráðbeinar rettur á örskots tíma. Hann tiplaði filtersendanum létt á eldhúsborðið til að þétta hana, klemmdi hana fasta á milli varanna svo hún stóð beint út úr munninum á honum. Hann kveikti í henni og andaði reyknum niður í lungu. Hann lokaði augunum og leyfði unaðshrollinum að fara um líkama sinn. Honum fannst eins og tilveran stöðvaðist, í eitt andartak var allt gott. Hann opnaði grænbrún augun og horfði fram fyrir sig á málverkið á borðstofuveggnum. Þunginn kom svífandi aftan að honum og kramdi niður allan létti. Andardrátturinn varð hraðari og svitaperlur spruttu af enninu. Hann fann hvernig maginn herpist saman og sásaukinn vitjaði hans á ný. Óbragðið af sígarettunni varð eftir í munninum á honum. Honum var óglatt. Hvað hafði hann gert? Hann vissi að ekkert gæti látið atburði næturinnar hverfa. Hann reyndi að koma ró á hugsanir sínar en þær þutu áfram eins og taugafrumur með áríðandi skilaboð. Hvað átti hann að gera? Hvernig myndu fjölskyldan hans taka þessu? Það gæti enginn skilið afhverju hann gerði þetta, alveg sama hvernig hann reyndi að útskýra það. Hann gæti látið sem ekkert væri, látið hana hverfa svo hún finndist aldrei aftur. Gæti hann það? Gæti hann verið svo kaldur? Gegn vilja sínum leit hann snöggvast yfir ganginn og á átt að baðherberginu. Óeðlilega rauð birta tók á móti honum.

|