"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

miðvikudagur, mars 08, 2006

Tónleikar

Háskólakórinn heldur tónleika fimmtudaginn 9. mars klukkan 12:30 í Norræna húsinu. Á dagskránni eru ýmis þjóðlög, bæði íslensk og erlend, þeirra á meðal tvö lög eftir Atla Heimi Sveinsson við texta Odds Björnssonar og tvö íslensk þjóðlög í útsetningu Jóns Ásgeirssonar.

Háskólakórinn hefur verið starfræktur síðan 1972 og er kórinn skipaður nemendum við Háskóla Íslands. Í kórnum er mikill metnaður í flutningi verka, en þessir tónleikar eru fyrri tónleikar af tveimur sem kórinn heldur í vor, auk þess að syngja við útskriftir og ýmsar aðrar athafnir Háskóla Íslands. Síðari tónleikar kórsins eru á dagskrá í apríl og verða þeir stærri í sniðum. Þau lög sem flutt verða í Norræna húsinu verða einnig á söngprógrammi kórsins í Vaasa á Finnlandi í maí, þar sem hann mun taka þátt í alþjóðlegu kóramóti. Stjórnandi Háskólakórsins er Hákon Leifsson og eru kórmeðlimir í dag rúmlega fimmtíu talsins úr vel flestum deildum háskólans.

Kostar 500 krónur inn, 300 kall fyrir stúdenta.

|