"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, mars 20, 2006

djö

jæja, þá er ég loksins búin að ákveða hvað ég ætla að fjalla um í verkefninu sem ég á að skila á miðvikudaginn. Það er ekki seinna vænna. Stundum vefjast hlutirnir alveg ótrúlega mikið fyrir mér. Ég verð alveg rosalega busy út þess viku (mætti alveg segja út þessa önn) þar sem ég þarf að vinna tvö rosa stór verkefni og skila á næstu dögum... og ég er lasin. Ekki skemmtileg samsetning þar á ferð. ég var komin á fremsta hlunn með að hætta í skólanum, alveg að klepra og skrifaði því alveg rosalega niðurdrepandi færslu um háskólanám mitt fyrr í dag. Hún vildi ekki pöblishast... þið fáið þessa í staðin. Best að spýta í lófana!

Er líka búin að reyna að pöblisha myndum frá kórpartýinu en það gekk ekki heldur... þetta verður bara að duga í bili.

|