læti og leti
mig langar að fara að sofa, er e-ð voðalega sybbin. ég reyndi að leggja mig áðan en Óli bróðir ákvað að nota tækifærið og syngja hástöfum fyrir mig, svo ákvað hann að setjast ofan á mig og kitla mig. ég náði ekki að hvílast vel.
ég held samt að ég sé í raun ekki þreytt, ég bara nenni ekki að læra fyrir próf. mig langar að mótmæla því að ég sé skyldug til að vera í kúrs sem á ekkert eftir að nýtast mér í starfi og er ekki vitund sniðinn að mínu námi.
en já, maður á ekki að kvarta. það er ekki gott að kvarta, sérstaklega þegar maður hefur það bara alveg ágætt.

<< Home