"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

miðvikudagur, mars 22, 2006

pöbbquiz á stúdentakjallaranum í kvöld!

Í dag var sögulegur dagur í búskap mínum. Ég borðaði pakkanúðlur í fyrsta skiptið! Örþrifaráð sem ég hef hingað til ekki þurft að grípa til. Ég ákvað það þegar ég flutti í haust að ég myndi ekki stunda þennan hefðbundna námsmanna-núðlubúskap, hef ég því hingað til haldið mig við hluti eins og hrísgrjón og kússkúss... og nammi. Og fleira í þeim dúr.
...
...
Dagurinn í dag var þó líka hefðbundinn að því leiti að ég náði á einhvern undraverðan hátt að fokka upp náminu mínu eins og mér einni er lagið en svo reddaðist það af sjálfu sér. Hefðbundinn? Spyrjið þið eflaust - já, skólaganga mín er eitt walking disaster sem einhvern veginn reddast alltaf á undraverðan hátt. Þetta gerist svo oft að vinkona mín sagði við mig í fyrra að ég ætti skilið að falla á prófi, bara til að finna fyrir því hvernig tilfinning það væri. Það er eiginlega rétt hjá henni, ég er samt fegin að það hafi ekki gerst hingað til.
...
En já, það sem gerðist var nokkurn veginn það að í gær, eftir kóræfingu, fór ég heim í þeim tilgangi að fá mér að borða áður en ég færi að skrifa ritgerð sem ég átti að skila í morgun. Eftir að hafa borðað fór ég í fótabað, sem leiddi til þess að ég fór í sturtu, sem leiddi til þess að ég lagðist aðeins upp í rúm. Í stuttu máli sagt þá vaknaði ég klukkan 4 í nótt og áttaði mig á því að það væri búið að loka bókasafninu og skólanum og að ég ætti að skila ritgerð og halda framsögu um hana eftir fjóra tíma... ég var ekki sátt. Ég reyndi að klóra í bakkann og vinna verkefnið en mig vantaði heimildir. Ég reyndi því bara að skipuleggja mig þannig að ég gæti a.m.k. kynnt verkefnið í tímanum. Planið var svo að grenja frest út úr kennaranum. Þegar ég kom svo í tímann þá fékk ég þær fréttir að það hafi verið ákveðið að við mættum skila verkefninu í næstu viku.
...
...
Ég er fegin, því að mér finnst efnið sem ég er að skrifa um mjög spennandi. Mig langar að skoða hvernig hugtakið þróun birtist í kennslubókum grunnskólabarna. Hvað við teljum að það þýði að vera þróað samfélag t.d. samkvæmt samfélagsfræðibókum. Mig langar einnig að velta því fyrir mér hvort að sú mynd sem við drögum upp geti í raun gefið neikvæða mynd af öðrum þjóðfélögum. Samanber með því að tala um vanþróuð lönd. Geta fátæk lönd þá ekki þróast? Er ekki full gróft að halda því fram að þær þjóðir sem ekki eiga jafn mikið af peningum og tækni og við séu vanþróaðar? Er það ekki svipað og að segja um einhvern sem er fátækur; Hey! djöfull er hann eftir á...
...
bara svona nett miðvikudagspæling...
...
...
En nú er það aðferðafræðin... læra læra læra, gaman, gaman - Jei!

|